Bloggið hennar Kisu

há JÚ dúíng

23.01.2009 20:58:55 / kattwoman

Bóndadagurinn

Er þegar bændur gefa kvonfangi sínu eitthvað voða fallegt!
Þennan dag... sem er reyndar 1/2....(2/2 þá konudagurinn) meiga þeir eyða fullt af peningum í eitthvað eins og kitjeneid útbúnað sem þeir svo nota ársins hring til að baka og elda eitthvað stórkostlegt með alla hina dagana.

Eða.....

Er bóndadagurinn bara fyrir bændur?
Gefa þeir til dæmis mjaltarvél eða vinnukonunni ættnafnið sitt?

Verð að segja að ég hallast að kitsjeneid...
Þygg líka bara allt sem er í stíl við mig...fellega fab:haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.12.2008 00:09:14 / kattwoman

Í ár...

...er littla Kisa búin að vera 11 ára táningur (táningur að eigin sögn þá), en í dag...1.des verður hún 12 ára.

Undanfarnir 57 dagar hafa verið ítrekuð áminning, þá á ég við að hún hefur staðið sig eins og hetja í því að minna mig á afmælisdaginn.
"Mamma, það eru 56 dagar þangað til ég á afmæli....mamma það eru 55 dagar þangað til ég á afmæli....mamma..... "
Jú get ðe point!

Undanfarna daga hafa líka staðið ansi harðar samningaviðræður er varða andlitsfarða, hárlitun OG lengingar... því ALLAR stelpurnar fá ÖRUGGLEGA svoleiðis strax og þær verða 12... og það er ekkert að því að 12 ára UNGLINGAR noti eyeliner og maskara í skólann!

Viðræðum lauk með lokatilboði stóru Kisu... en ég bauð henni að versla sér úlpu í vinnufatabúðinni frekar en Hagkaup:d  Henni finnst hún mjög heppin, allir vinna!

Ótta mínum hefur verið frestað um sinn... ég er ennþá mamman hérna :lol:





» 2 hafa sagt sína skoðun

18.10.2008 07:45:15 / kattwoman

Kross um hálsinn ....hræsni?

Ég bið Drottin að leiðbeina mér

Á dómsdegi mun ég liggja á maganum, hyl andlit mitt, krýp mig...beygi mig að innan....  því ég veit að hann  Drottin sér...

Allir sem hafa hitt Drottin hafa lagt höfuðið við jörðina, óverðugir...og bara manneskja
Það er ekki akkúrat heillandi hugmynd að standa frammi fyrir Guði almáttugum á dómsdegi og segja honum að ég hafi nú alltaf verið með kross um hálsinn!
Beðið Faðir vorið mitt...jafnvel fleiri bænir

Hann þekkir hjartað mitt... akkúrat það fær mig til að líta undan.. beygja mig... líta undan
Ég get ekki horft í augun á FULLKOMNA FAÐIRNUM og fengið staðist af hegðun eða gjörnaði!

Náðin... en svo spila ég upp á hana

Ég skildi aldrei hvað „Faðir“ var... því ég þekkti  það ekki...

Svo er  ég samt svo blessuð,  að ég þekkti umhyggju..
og þegar ég sjálf eignaðist barn,
þegar ég skildi þessa umhyggju sem einkennir það að elska barnið sitt,
skilyrðislaust..
þrátt fyrir allt, vegna alls, út í allt og til alls....
heilt upp til Jesús eins og Eva mín segir..
þá fyrst gat ég kyngt þessu...
öll þessi orð fá ný gildi!

Þegar ég fletti í Biblíunni og læri að þekkja Faðir minn, segir hann mér að ég skuli ekki óttast.

Hann leggur ekki meira á mig en hann veit að ég þoli... (gott að lesa Jobsbók) ég veit þess vegna að ég get alveg andað...úff.... bara andað!
Þetta er allt í lagi... !!! Það er svo gott!

Í stað þess að örvænta, bý ég við þá fullvissu að ég þoli þetta, ég læri af þessu, kannski er þetta allt saman bara alls ekkert um mig! HJÚKKET
Kannski er það einmitt að vera í stakk búin að vera öxl annara.. eða „titsjú“.. kannski bara augnaráð eða klapp á öxl... mikið finnst mér gott að fá klapp á öxl og bros sem segir mér að allt verði ok.

Í dag get ég ekki sagt að ég hafi gert mitt besta... ég ttla alltaf að gera  það á morgun.. Guð gefur mér rými,... er það ekk? Sofum ekki á verðinum

Lúkas, kafli 17, vers: 34-36

"Ég segi yður: Á þeirri nóttu verða tveir í einni hvílu, annar mun tekinn, hinn eftir skilinn.
Tvær munu mala á sömu kvörn, önnur verður tekin, hin eftir skilin.
Tveir verða á akri, annar mun tekinn, hinn eftir skilinn.
"

(Hér má benda á að í gegnu guðspjöllin er bent á að á meðan það er morgun er nótt annarsstaðar...þarna skildi einhver að jörðin var ekki flöt.... )

En vakið segir hann alltaf...

Hann biður okkur ekki að bera krosstákn um hálsinn, biður okkur ekki um yfirlýsingar... eða flokkadrætti... ég er Jóns, ég er Péturs, ég er Jóhannesar, ég er Tímóteusar
Öll erum við einn líkami.... 2 fætur, 2 hendur, 1 haus, eitt hjarta....

Í baráttu mun vissulega einn handleggur tapa á móti heilum líkama.

Við erum líkami Krists, ..sum okkar biðja,(hendi?) önnur syngja(fótur?), einhverjur hella upp á kaffi (bakið?), einhverjir fara í trúboð... því við erum LÍKAMI KRISTS! ... Ekki farlama, heild!

Ekki fótur eða hönd, saman erum við líkami.Við þurfum að sjá, að heyra,,, að lifa sem líkami.

Hann segir

Matteusarguðspjall, kafli 25: vers 31-46
Þegar Mannssonurinn kemur í dýrð sinni og allir englar með honum, þá mun hann sitja í dýrðarhásæti sínu.
Allar þjóðir munu safnast frammi fyrir honum, og hann mun skilja hvern frá öðrum, eins og hirðir skilur sauði frá höfrum.
Sauðunum skipar hann sér til hægri handar, en höfrunum til vinstri.
Og þá mun konungurinn segja við þá til hægri: Komið þér, hinir blessuðu föður míns, og takið að erfð ríkið, sem yður var búið frá grundvöllun heims.
Því hungraður var ég, og þér gáfuð mér að eta, þyrstur var ég, og þér gáfuð mér að drekka, gestur var ég, og þér hýstuð mig,
nakinn og þér klædduð mig, sjúkur og þér vitjuðuð mín, í fangelsi var ég, og þér komuð til mín.
Þá munu þeir réttlátu segja: Herra, hvenær sáum vér þig hungraðan og gáfum þér að eta eða þyrstan og gáfum þér að drekka?
Hvenær sáum vér þig gestkominn og hýstum þig, nakinn og klæddum þig?
Og hvenær sáum vér þig sjúkan eða í fangelsi og komum til þín?
Konungurinn mun þá svara þeim: Sannlega segi ég yður, það allt, sem þér gjörðuð einum minna minnstu bræðra, það hafið þér gjört mér.
Síðan mun hann segja við þá til vinstri handar: Farið frá mér, bölvaðir, í þann eilífa eld, sem búinn er djöflinum og árum hans.
Því hungraður var ég, en þér gáfuð mér ekki að eta, þyrstur var ég, en þér gáfuð mér ekki að drekka,
gestur var ég, en þér hýstuð mig ekki, nakinn, en þér klædduð mig ekki, ég var sjúkur og í fangelsi, en ekki vitjuðuð þér mín.
Þá munu þeir svara: Herra, hvenær sáum vér þig hungraðan eða þyrstan, gestkominn eða nakinn, sjúkan eða í fangelsi, og hjálpuðum þér ekki?
Hann mun þá svara þeim: Sannlega segi ég yður: Það allt sem þér gjörðuð ekki einum hinna minnstu bræðra minna, það hafið þér ekki heldur gjört mér.
Og þeir munu fara til eilífrar refsingar, en hinir réttlátu til eilífs lífs.

Ég vill vera hægra megin ;)

Áðan fékk ég að heyra að það væru skiptar skoðanir um þann uppáþrengjandi dónaskap að setja biblíuvers aftan við nafnið mitt og annarra á MSN

það er samt velkomið að vera með skot, neikvæðni, bytturugl, mont, stolt.... og vælubílinn... bara virðist samnemendum ofaukið að lesa eitthvað eins og : Jóh.3:16  

1. Korintubréf, kafli 19, vers 19-27
Ritað er: Ég mun eyða speki spekinganna, og hyggindi hyggindamannanna mun ég að engu gjöra.
Hvar er vitringur? Hvar fræðimaður? Hvar orðkappi þessarar aldar? Hefur Guð ekki gjört speki heimsins að heimsku?
Því þar eð heimurinn með speki sinni þekkti ekki Guð í speki hans, þóknaðist Guði að frelsa þá, er trúa, með heimsku prédikunarinnar.
Gyðingar heimta tákn, og Grikkir leita að speki,
en vér prédikum Krist krossfestan, Gyðingum hneyksli og heiðingjum heimsku,
en hinum kölluðu, bæði Gyðingum og Grikkjum, Krist, kraft Guðs og speki Guðs.
Því að heimska Guðs er mönnum vitrari og veikleiki Guðs mönnum sterkari.
Bræður, hyggið að köllun yðar: Þér voruð ekki margir vitrir að manna dómi, ekki margir máttugir, ekki margir stórættaðir.
En Guð hefur útvalið það, sem heimurinn telur heimsku, til að gjöra hinum vitru kinnroða, og Guð hefur útvalið það, sem heimurinn telur veikleika til að gjöra hinu volduga kinnroða.

Fólk....... er bara einu sinni fólk...og ég er líka fólk
Oftar en ekki hefur mér verið brugðið með þetta fólk og mig sjálfa ... það er nefinlega oft þannig að þegar við teljum okkur getað lokað augunum...þurfum við að hafa þau opin
J

Að vaka, að rannsaka... að vera ekki með yfirlýsingar og kross um hálsinn... hávaða og játningar á almannafæri...(ALMENNINGSÁLITIÐ  ER GRÓFUR STAÐUR)
Öll með hugsjónir og plön um að endurskipuleggja heiminn ...hver erum við þá, þessir hægri megin eða vinstri ?  
Að læra að þekkja Guð, í auðmýkt...ekki eins og mér hentar ... eins og honum hentar... því hann vissi að þegar ég var barn, drakk ég brjóstamjólk... hann gaf mér svo graut og færði mig svo upp í fasta og stöðuga fæðu...

Krossinn þinn er fallegur og minnir þig vonandi á takmarkið

en þú verður ekki bíll á því að vera í bílskúr, Lada verður ekki Range Rover þó ég skelli RR merkinu á hana.... Lada er samt lada.... Range er Range

Ekki hvíla í því sem er þæginlegt, ekki horfa á hálsfestar, ekki hlusta á yfirlýsingar

Af ávextinum skal tréð þekkjast

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.10.2008 02:18:30 / kattwoman

Óskasteina....minnir óneitanlega á ástandið

 

Fann ég á fjalli fallega steina

faldi þá alla vildi þeim leyna,

huldi þar í hellisskúta heilla steina

alla mína unaðslegu óskasteina.


Langt er nú síðan leit ég þá steina

lengur ei man ég óskina neina

er þeir skyldu uppfylla um ævidaga

ekki frá því skýrir þessi litla saga.


Gersemar mínar græt ég ei lengur

geti þær fundið telpa eða drengur

silfurskæra kristalla með grænu og gráu

gullna roðasteina rennda fjólubláu.


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.10.2008 21:43:53 / kattwoman

Það er svo ótrúlega margt sem mig langar að segja...

en ég læt það ósagt í bili...

hljóta aðgerðir að sitja í fyrirrúmi... og ég má vanda mig, orðafarið það er!

Það stendur mér næst er samt sem áður eitthvað sem ég get ekki látið vera að tjá mig aðeins um...

Nú er systir mín stödd í DK í námi ásamt manni og 3 börnum. Hann er að klára sitt nám núna um jólin og hún er að taka Bachelorinn... 

Ég veit ekki hverskonar aðgerðir þau þurfa að fara út í til þess að geta framfleytt sér og fætt og klætt sig og börnin

Ég veit að ég vildi að Davíð Oddson tæki það að sér að fljúga erlendis til námsmanna með peninga í umslagi handa þeim!

Bankarnir hafa verið í útrás, þeim voru gefnar frjálsar hendur og engin setti þeim leikreglur...

Ef ég nú myndi vilja kaupa mér frið... sendi barnið inn í herbergi að leika sér og kem svo í sprengingu eftir 2 tíma hef ég ekki við neinn nema mig sjálfa að sakast!
Ég naut þess þá væntanlega að geta gert það sem mig langaði í þennan tíma eins og þjóðin auðkýfingar þjóðarinnar sem þykjast starfa í þágu almennings nutu góðs af inn á bankabækur sínar.
Hvaða RUGL er það að benda fingrum á þá sem léku sér einfaldlega innan rammans?
Það er þeirra sem setja reglurnar að sakast.

Um 1930-40...þekki það ekki alveg voru settar reglur í USA varðandi nkl sama málefni en þá var þar banki sem var farin að lána ríkinu gullforða. Bankinn var sumsé orðin umfangsmeiri en þjóðarframleiðsla USA.

Menn hljóta að sjá það... að allur fjármálageirinn sem lifir á hámörkuðum yfirdrætti er í örlítilli hættu...hmm?? En þetta er einstaklega Íslensk hugsun.. að þetta reddist um mán mótin. Hver reddar um mán.mót.. nema við.. veit að amma hefur lagt fyrir, reynt að fylgja ráðum "sérfræðinga" KB banka og fleiri sem birtast gjarnan í viðskiptahluta fréttatíma sjónvarpsstöðva... aldeilis sérfræðingar.. breyta öllu í myntkörfulán... og fjölmiðlar kalla þetta ENNÞÁ sérfræðinga????

Aftur... þá er þetta ekki tíminn til að deila um ábyrgð og þessi og hinn sagði.. þetta er tími aðgerða.

En hver ætlar að fljúga til systur minnar með peningana hennar?


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.10.2008 02:12:51 / kattwoman

Jébb... ég er að hóta!

Verandi aktúall "vefstjórnandi" hérna ... sé ég að ég er alveg GUCCI bloggara...
Meina, allir sem safna geta fengið sér Gucci :lol:

Ég er að spá í að fá mér bara moggablogg eða vísisblogg.. þar finnst fólki það gjarnan eiga rétt eða tilkall til þess að viðra skoðanir sínar og það er nú einu sinni markmiðið með þessu öllu saman.
Ég er sumsé (EKKI gleyma ALHEIMSDROTTNING) en ég er tilbúin að hlusta á almúgann!
Við erum auðmjúkar og góðar konur, þessar Alheimsdrottningar!

Alheimsdrottningar eiga það sameiginlegt að þekkja ekki allan lýðinn þrátt fyrir endalausa elsku....

Konungsvaldið óskar eftir viðbrögðum fólksins.. .hirðdrengir og búktalarar!


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.09.2008 03:30:59 / kattwoman

Hrafnhildur L. Það er svo margt...

sem þarf að taka tillit til...
hvernig hún var... lyktin af henni
allt það sem henni þótti gott... og það sem hún hló af...
það sem hún tók engan vegin alvarlega og það sem hún tók nærri sér..........
hún, eru hennar hugsannir...eða...
hún er það sem hún hugsaði
hún átti það til að brosa... ekki bara af og til... alltaf
hún átti það til að berjast
hún átti það til að elska
hún átti það til að vita bara betur... og þess vegna lifði hún svona eins og hún lifði
Lifandi..
því hún vissi betur
 

1.Þess.4:15-18

15Því að það segjum vér yður, og það er orð Drottins, að vér, sem verðum eftir á lífi við komu Drottins, munum alls ekki fyrri verða en hinir sofnuðu. 16Því að sjálfur Drottinn mun stíga niður af himni með kalli, með höfuðengils raust og með básúnu Guðs, og þeir, sem dánir eru í trú á Krist, munu fyrst upp rísa. 17Síðan munum vér, sem eftir lifum, verða ásamt þeim hrifnir burt í skýjum til fundar við Drottin í loftinu. Og síðan munum vér vera með Drottni alla tíma. 18Uppörvið því hver annan með þessum orðum.

Huggun....
Elsku elsku Hrafnhildur

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.09.2008 23:08:45 / kattwoman

Ég er...

Ég er úrgangur afkasta jarðarinnar

Ég er sæðið sem skilaði sér rétt svo bærilega... óheppni

Ég er siðblinda sjálfs míns

Ég er sársaukinn

Ég er byrgði þeirra sem elska mig

Ég er verst þeim sem eru mér bestir

Ég er blásýra framfara

Ég er hundapokinn á veitingarstaðnum

Ég er grænmetið sem þú skilur eftir á disknum

Ég er súra mjólkin í ísskápnum

Ég er tómt sykurkar

Ég er minning sem þú átt ekki mynd af

Ég kvelst en ég þegi

              því ég veit hver ég er


Já kæru börn og blogglesendur... Spennandi og upplýfgandi viðbót á bloggið hennar Kisu, njótið elskurnar


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.09.2008 20:42:18 / kattwoman

Fallegastur, engillinn minn..Júlíus

Mig langar þjóna þér og dá þig, strjúka á þér tærnar..tilheyra þér
Langar að vera regnhlífin þín í rigningunni, skjól í vindi, sólaráburður á Spáni.. tilheyra þér...

Ég þrái leiðsögn þína og umhyggju.. ástina sem ég sá þegar ég horfði inn í sálina þína

Mig langar að vera  þér ljósið þegar myrkrið sækir á þig,
vera til staðar þegar þú ert einn..
Brosa til þín þegar aðrir garga,
vera stuðningur þinn í byltingum lífsins..
Þegar þú þráir, skal ég svara
þegar þig þyrstir, skal ég ganga á eftir vatni...
þegar þú ert uppgefin, skal ég standa á fætur
Ég vill vera brosið þitt og tár
kvöl þín og gleði..
ég vill þig frá eilífu...
         að eilífu



 


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.09.2008 01:04:21 / kattwoman

Hún Hallveig Hörn Þorbjargardóttir, vinkona mín!

Vegna þess að það virðist einkenna þig, eða þá sem eru þér nálægir að fólk kýs að segja þér sögu, frásegja sér mistök sín, hvísla að þér orð og játningar í einlægni...
Og í réttvísi þinni færðu það ekki að þér að leiðrétta, garga, standa á haus eða stinga í bak...þá ákvað ég að birta mín orð á veraldarvefnum.

Orð fá því ekki lýst hversu lifandis ósköp fegin og þakklát ég var og er fyrir að hafa eignast akkúrat þig að vin. Vinafá....en vinagóð... ekkert voðalega bjartsýn á þetta endalausa fólk sem fer framhjá mér í lífinu... hitti ég akkúrat þig.

Í gegnum allt.. ég hef ekki getað boðið þér annað en bros eða klapp á öxlina, en þú hefur verið mér allt. Það sem ég átti aldrei von á... svona vin eins og þér engill.

Ég er búin að horfa upp á fólk brjóta á þér, ljúga upp á þig.. og sem vinkona þín skapar það gremju hjá mér að sjá fólk brjóta á þér... en ég get ekki ýmindað mér hvað það gerir við þig mín kæra.

Litla ljósið mitt... já það er einmitt það sem þú ert... Það sem ég veit að ég geng að hjá fjölskyldu minni sem ber ákveðin hag í brjósti er kemur að velferð minni.. og það sem ég geng að hjá áralöngum vinum.. því geng ég jafnt að hjá þér. Ég hef þekkt þig í 5 mínútur en 500 ár.

Í þessum endalausu göngum sem ég hef gengið undanfarna mánuði... þá hefur þú bara verið ljósið mitt og lukt.. ég bið góðan Guð að gefa mér það að geta fært þér það sama í það minnsta.. en allavega Halla mín...

Þá ert þú ljósið mitt í myrkrinu, brosið á fýludegi, íbúfen í vöðvabólgu, mjólk í kalkleysi... þú ert bara einfaldlega það sem heimurinn þarf... vítamín elskan.

Love you


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.09.2008 02:27:28 / kattwoman

Jesaja 55:8-9 og smá fréttir...

"Já, mínar hugsanir eru ekki yðar hugsanir, og yðar vegir ekki mínir vegir- segir Drottinn. Heldur svo miklu sem himininn er hærri en jörðin, svo miklu hærri eru mínir vegir yðar vegum og mínar hugsannir yðar hugsunum."

Stundum bara skil ég ekki neitt, en það er gott að Guð er með þetta á hreinu :d

Það eru stórfréttir af Kisunum, m.a flutningar til úglanda á næstu dögum... eins og í góðri framhaldssögu segir sögumaður meira í næsta kafla..eða færslu... ja eða dreg það bara á langinn..:lol:

Vakandi og sofandi, hugsandi og pælandi, loks hvílandi í þeirri fullvissu áttavitinn sé alveg hárréttur... "made in heaven" klikkar ekki!

Ástfangin af lífinu, þessi nýja ást...sem leyfir mér ekki að sofa eða vaka.. brosi og tárast...hræðsla og öryggi, fullvissa og örvænting um leið... afbrýðisemi og traust... mest af öllu bara tilhlökkun...

Kisa óver end át;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.08.2008 17:58:27 / kattwoman

Ég er svo stolt af strákunum okkar..

En mér finnst þetta heldur langt gengið.

Þrátt fyrir allt það jákvæða sem íþróttir hafa í för með sér þá lítur þetta út fyrir að vera farið að kosta ansi mikið.

Hver á að greiða fyrir þetta? Þyrlur og þotur, mannskapur, útkall slökkviliðsins o.s.f

Það hefði verið gaman að sjá eitthvað meira en viðtal á Leifsstöð við gullverðlauna hafa á ÓL fatlaðra 2004! 

"Íþróttamaður Reykjavíkur árið 2004 er Kristín Rós Hákonardóttir sundkona úr Fjölni og Íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík. Kristín setti heimsmet í 100m baksundi og vann til gullverðlauna á Ólympíuleikum fatlaðra í Aþenu í sumar. Hún vann að auki til silfurverðlauna á Ólympíuleikunum í 100m bringusundi. Kristín náði einnig góðum árangri á Opna Danska og Opna Þýska Meistaramótinu þar sem hún vann annars vegar þrjú gull og hinsvegar fjögur gull. Kristín á Íslandsmet í öllum þeim sundgreinum sem keppt er í í hennar flokki. Kristín fékk til varðveislu farandbikar og eignarbikar ásamt 150.000 kr. styrk frá ÍBR af þessu tilefni."
Tekið af vef : http://www.isisport.is/if/undir84.htm 

ÓL fatlaðra líta út fyrir að vera síðri...gullið þar er kannski sama og þátttaka á ÓL?

Sé ekki hvernig þetta er réttlætanlegt á meðan við getum ekki greitt byrgðir sjúkrahúsanna, aukið rími á hjúkrunarheimilum og aukið gæði frístundaheimila og leikskóla með menntuðu fólki.

Strákarnir eru eflaust upp með sér, en ég veit ekki hver hefði valið sé slíkar móttökur ef sá hinn sami hefði vald til þess að setja þessa peninga í annað og mikilvægara eins og ofantalið...

Voðalega er ég fegin að þeir tóku ekki gullið


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.07.2008 08:09:32 / kattwoman

Verónu inspirerað

Halla vinkona leyfði mér að heyra lag um daginn... með Poetrix.
Það heitir :Tileinkað Verónu (
www.myspace.com/poetrixmusic)
Ég hef heyrt í þeim áðum... sungu með Bubba..


Þeir sem þekkja mig vita að ég þekki ALLT (sonna flest allt) með Bubba, enda mundi ég þetta lag.... „líkkistur með vasa“...
Þetta lag.
Það er meira en lag.
Eins og öll stórverk, þá er það saga... sagan hennar Verónu, sagan sem loksins einhver sagði.


Textasólgna týpan sem ég er... fór ég að leita á netinu að textanum á prenti en fann ekkert.
Ég fann samt ummæli á Hugi.is sem komu við mig.

Karlmaður hafði  fundið sig í laginu, ekki sem gerandi...
Hann kannaðist við söguna sagði hann.... en það gerðist ekki í afríku, það gerðist á skerinu, hérna... fyrir einhvern sem hann elskaði...


Óvissan og óöryggið, ráðaleysið ... hann þekkti það....hún mundi það.

Mér datt það í hug, hvað við erum fljót að dæma... sem fólk..
Að ólíkir menningarheimar hljóti að þjást vegna þess að þeir líkjast ekki okkur???
Ég fór að hugsa... hvað er frelsi?
Hvað er að eiga sig sjálfan?
Hvað er að geta um frjáls höfuð strokið?

Eru okkar kynferðisbrot smekklegri... því við þekkjum þá sem fremja þau?
Er það betra....?

Veróna...

Hún bograði með fötur fullar af vatni heim á leið handa fjölskyldu sinni, lítil stelpa.. vætti ekki kverkarnar þó hún væri að skrælna upp.
Kom að fjölskyldu sinni bundinni upp við húsvegg, með 7 ógnvekjandi skegglausa drengi fyrir framan sig. Segjandi henni að þegja, hentu henni í jörðina...glenntu hana og sviptu hana því sem hún átti ein að eiga...
á meðan mamma hennar horfði á og dó inní sér og faðir hennar grét...systkini hennar reyndu eflaust að loka augunum...en þetta var vegna þess að pabbi hennar hafði skoðun.

Er betra að hafa ekki skoðun?
Hvað gerist þá?
Ekkert mótlæti...fáum við að rækta landið? Eða er alltaf einhvern sem þyrstir í völd???

Veróna....

Á meðan ég klæði mig í skónna og kjólinn frá því í gær og þurrka mér að neðan hugsa ég til þeirra sem minna meiga sín.. þetta var langt í frá, við erum vinir... þó ég hafi sofið og streist á móti, við erum vinir.... er það ekki?


Frjálsar konur!
Sem betur fer bý ég hér... en ekki þar...!
Þyrfti kannski að ganga í kufli eða einhverju hræðilega niðrandi.. betra að vera vestræn og frjáls...
Okkar kynferðisbrot eru bara einhvernvegin snyrtilegri!

Veróna...

Á meðan Veróna deyr Guði sínum þá nótt...deyjum við rólega á hverjum degi, smá í einu
Þekki ekki sjálfa mig, er farin að ljúga að sálu minni...allt er betra en að sjá finnst mér, að eiga þennan sársauka....

Veróna...

Og við....

óvissan og óöryggið, ráðaleysið ... hann þekkti það....ég man það.

 

 

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

23.06.2008 21:22:18 / kattwoman

Hver nennir að lesa þetta?

Mánudaginn 22 júní 2008, í fréttum var þetta helst:

Í dag sagðist ástin mín elska mig.
Tennurnar mínar eru hvítari en í gær!

Fór í vinnuna og fékk launahækkun... óumbeðna.
Í hádeginu heimsótti mig svo kær vinkona, sem ég hafði misst allt samband við, hafði saknað hennar.

Ég fór á netið og sá að gengið er upp á sitt besta,
leit á stöðu hlutabréfanna og sá að við hefðum hagnast...vel...

Horfði svo á enska boltann klukkan 14:00.... mitt lið vann!

Í kaffinu kallaði stjórinn á mig
ég vann í fyrirtækjalottóinu.. ferð fyrir fjóra í "Safarí í Afríku".

Kom heim eftir vinnu, endurnærð....
..bara til þess að sjá að kallinn var að grilla á milli þess að hann hoppaði glaður með börnunum okkar á trompólíninu sem við keyptum fyrr í sumar, hlæjandi.

Undir matinn sagði ég þeim hvað ég hafði unnið, við hlógum saman og töluðum um hvað við myndum eiginlega sjá og fá að upplifa...
...börnin fóru glöð og múðurslaus að sofa í rúmmið eftir lestur, á meðan var ég í baði og sötraði rauðvín.
Pabbi þeirra signaði þau.

Kyssti þau góða nótt,
báðum Guð góðan og englana að geyma hvert annað...
..svo elskuðumst við og sofnuðum...

Á meðan við sváfum leið heimurinn undir lok.

» 3 hafa sagt sína skoðun

28.05.2008 07:34:45 / kattwoman

Og til hvers er þetta blogg nema til að blása út?

Þannig er... að ég er komin með nóg af þessari viðstöðulausu umræðu í fjölmiðlum landans, bloggum og bröndurum á vefpóstum varðandi unga fólkið okkar.

Í fyrradag var mér sendur vefpóstur sem bar yfirskriftina : Unglingar við afgreiðslu. 
Þar hafði lesblindur einstaklingur safnað saman sögum fólks sem var greinilega til í "Denn" varðandi afglöp og fávísi unglinga í dag...
Þar var meðal annars talað um starfsmann á bensínstöð sem vissi ekki hvað "vinnukonur" eru! Eigum við ekki að hengja hann?? Að þekkja ekki slangur fullorðins fólks.
Verð að segja að ég var í smá stund að átta mig á því hvað væri eiginlega markmiðið með þessum pósti...hann átti að vera fyndin held ég, en hann missti algjörlega marks! Beint í ruslið.

, svo kannast eflaust flestir orðið við málið sem kom upp í 10/11 varðandi ungan dreng sem var ásakaður um þjófnað. Hann brást við eins og kannski margir sem eru ásakaðir saklausir um eitthvað, eða með reiði. Hann var að sjálfsögðu tekin kverktaki og snúin niður, handjárnaður og færður á stöðina... það fannst ekkert á honum.
Verslunarstjórinn í þessari verslun lét hafa það eftir sér að starfsfólk hans hefur átt í vandræðum með unglinga á aldrinum 12-14 ára (allir vita jú að meðalaldur starfsmanna hjá 10/11 er MUN hærri:s) þannig að þegar þessir "strákar" komu inn í búðina og voru með læti hafi þráðurinn kannski verið orðin fullstuttur.

Lögreglan hefur sem betur fer sannað það og sýnt á síðustu misserum að henni er fulltreystandi til þess að fást við glæpamenn!

Ég las blogg áðan. Það skrifar lögfræðingur sem bendir réttilega á það að stóri bróðir má fara að passa sig á litla bróðir! Við erum jú öll komin með myndavélasíma og fleira fínerí. Kína og önnur lönd sem lengi hafa verið lokuð öllum fjölmiðlum hafa verið tilneydd til þess að "opna" fyrir fjölmiðlum ef ekki bara til þess að réttlæta sig fyrir það sem farsímaeigendur hafa náð á myndavélasímana sína...

Ég segi bara að þessi ákveðni ungi drengur má þakka sínum sæla fyrir síma vinar síns, og foreldrar hans. Undirrituð upplifði miður skemmtilega "hluti" er varða lögregluna og starfshætti þeirra þegar ég var 15 ára. En þá voru ekki til myndavélasímar.

Reyndar má taka tillit til þess að starfsfólk verslana er í áhættuhóp.. er varðar ofbeldi, þjófnaði og annað.. en þess vegna greiða verslunareigendur þeim sómasamleg laun. Þannig halda þeir meðalaldri starfsfólks uppi.
Ég veit ekki hvort það hefði haft mikil áhrif á mig sem var ansi "frjálslegt barn" að hafa einhvern 18 ára að benda mér á að haga mér betur.
En það er annað mál... Aftur á byrjunarreit..

Ég starfaði sem starfsmannastjóri hjá litlu fyrirtæki sem sér um verktaka. Þessir verktakar eru oftast nær ungt fólk á menntaskólaaldri sem fer í matvöruverslanir að kynna þar ýmsar vörur. Þarna starfaði að sjálfsögðu fólk á ýmsum aldri, en eftir að hafa starfað í að verða 3 ár hjá fyrirtækinu varð ég klárlega vör við það að það voru alls ekki unglingarnir sem stunduðu það að svíkjast undan, hringja sig inn veika í tíma og ótíma o.s.f. (femínistin í mér GARGAR á mig fyrir að skrifa þetta, en það voru ungu konurnar.. 25-35 sem voru verstar í því.)

Allavega.. þá langar mig að benda á það að það var akkúrat þetta unga, duglega og samviskusama fólk sem lenti nánast alltaf í vandræðum með dónalega kúnna og jafnvel starfsfólk.
Ein hringdi í mig ansi hrelld eftir að um 50tugur maður sem starfaði í kjötborði í ótilgreindri verslun hafði sagt henni að hann væri prófdómari í Versló og gæti verið góður við hana ef hún væri góð við hann.
Annar hringdi í mig eftir að hafa verið beðin um að fara úr verslun vegna klæðaburðar..hann var í Dolce & Gabbana skyrtu...
Ég fékk líka að heyra af konu sem hafði spurt einn kynningarfulltrúa um ákveðna vöru, hvort hún væri til og hvar. Reyndar er það ekki þeirra starf að sinna kúnnanum í versluninni, en þessi þekkti búðina og sagði að varan væri ekki til. Þessi kúnni lét fulltrúan vita að því að hann væri heimskur, auðvitað væri þessi vara til, KOMDU með verslunarstjórann... Og hummaði svo að það væri ekkert mark takandi á þessum unglingum sem starfa í verslunum í dag. Varan var ekki til!

Þetta er fólkið sem er gargað á, fólkið sem er í skóla, vinnur með honum... fær að hlusta fullorðið fólk tala um hversu "heimskt" það er, hversu illa upplýst og já svo er sett út á hvernig þau klæða sig, hvaða tónlist þau hlusta á.. þetta er jú alveg ómögulegt lið!!

Nú er litla Kisa að verða 12 ára.
Fyrr skal ég dauð liggja... eða nálægt því.. áður en hún fer að vinna í verslun eða við eitthvað þjónustustarf ef því er að skipta.

Mig langaði bara til að benda á, að þetta eru börnin okkar sem eru að vinna þessi störf.

Kv.
Kisa


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 35717
Klukkan
Bíómyndir eftir Kisuna